Nemendakönnun 6. – 10. b.
Nemendakönnunin fyrir nemendur í 6. – 10. bekk er lögð fyrir í október ár hvert og apríl ár hvert.
Eftirfarandi þættir eru mældir í nemendakönnun Skólapúlsins:
1. Virkni nemenda í skólanum (32 spurningar)
1.1. Ánægja af lestri (6)
1.2. Þrautseigja í námi (4)
1.3. Áhugi á stærðfræði (4)
1.4. Áhugi á náttúrufræði (4)
1.5. Trú á eigin vinnubrögð í námi (5)
1.6. Trú á eigin námsgetu (6)
1.7. Hlutfall nemenda með snjallsíma (1)
1.8. Símanotkun á skólatíma (2)
2. Líðan og heilsa (29 spurningar)
2.1. Sjálfsálit (6)
2.2. Stjórn á eigin lífi (5)
2.3. Vellíðan (6)
2.4. Einelti (6)
2.5. Tíðni eineltis (1)
2.6. Staðir eineltis (1)
2.7. Mataráskrift (4)
3. Skóla- og bekkjarandi (20 spurningar)
3.1. Samsömun við nemendahópinn (4)
3.2 Samband nemenda við kennara (5)
3.3. Agi í tímum (5)
3.4. Virk þátttaka í tímum (3)
3.5. Tíðni leiðsagnarmats (3)
4. Opin svör (2)
4.1. Vinsamlegast lýstu því hvað þér finnst sérlega gott við skólann. (1)
4.2. Vinsamlegast lýstu því hvað þér þykir slæmt eða megi betur fara í skólanum þínum (1)
Valið á spurningunum byggist að mestu leyti á próffræðilega staðfestum kvörðum úr PISA (Programme for International Student Assessment) og HBSC (Health Behaviour in School-Aged Children) rannsóknunum. Valið er endurskoðað árlega að vori á samráðsfundi með notendum kerfisins.
Niðurstöður fyrir skólaárið 2024-2025 er að finna hér.