Að útskrifast fyrr

 

Ýmislegt getur orðið til þess að nemandi óski eftir að útskrifast á undan sínum árgangi. Í slíkum tilfellum getur verið um að ræða útskrift úr einni eða fleiri greinum eða lokaútskrift úr grunnskóla. Sækja þarf um undanþágu með formlegum hætti hjá skólastjóra. 

​Nemendur geta útskrifast úr einni eða fleiri námsgreinum áður en 10. bekk er lokið. Í framhaldinu geta þeir sótt fjarnám í öðrum menntastofnunum. Hér er hægt að nálgast umsóknareyðublað varðandi útskrift áður en 10. námsári er lokið. 

​Eftirfarandi verklagi skal fylgt eftir við útskrift nemanda í einstakri námsgrein:

  • Alla jafna útskrifast nemandi sem hyggur á framhaldsnám úr námsgrein í lok 9. bekkjar eða um áramót í 10. bekk. Nemandi getur lokið öllu námsefni í námsgrein fyrr en þá án þess að útskrifast formlega.

  • Nemandi sem hyggur á útskrift í einstakri námsgrein áður en 10. námsári er lokið getur hafið undirbúning útskriftar í 8. eða 9. bekk í samráði við umsjónarkennara/kennara sinn. Til að svo geti orðið þarf nemandi að lágmarki að hafa einkunn upp á B+ á vitnisburðarblaði sínu og hafa sýnt góða ástundun.

  • Nemandi þarf að geta axlað ábyrgð á námi sínu.

  • Foreldrar skulu sækja um formlega með umsóknarblaði minnst tveimur mánuðum fyrir útskrift að óskað sé eftir útskrift barnsins í einni eða fleiri námsgreinum.

  • Nemanda ber að ljúka öllu námi í viðkomandi grein samkvæmt aðalnámskrá grunnskóla og uppfylla viðmið 10. bekkjar með hliðsjón af hæfniviðmiðum aðalnámskrár með framúrskarandi árangri.

​Sæki nemandi framhaldsnám í námsgrein sem hann hefur lokið fær hann leyfi í þeim tímum í grunnskólanum til að sækja þá tíma í fjarnámi framhaldsskóla ef á þarf að halda. Hitti þannig á að tímar í fjarnámi séu á sama tíma og einhver námsgrein í grunnskólanum, þannig hann komist ekki í hana, skal hann taka hana utan skóla eða skipuleggja nám sitt og fjarveru úr öðru námi í samráði við umsjónarkennara.

​Brautskráning áður en 10 ára skyldunámi er lokið

Foreldrar geta óskað eftir því við skólastjóra grunnskóla að barn þeirra sé útskrifað úr grunnskóla áður en 10 ára skyldunámi er lokið, telji foreldrar að viðkomandi nemandi hafi forsendur til að innritast í framhaldsskóla. Skólastjóri skal ráðfæra sig við umsjónarkennara nemandans og sérfræðiþjónustu sveitarfélagsins áður en hann tekur ákvörðun í málinu. Skólastjóri metur hvenær nemandi hafi lokið grunnskólanámi og ber ábyrgð á útskrift hans úr grunnskóla. Nemanda ber að ljúka öllu skyldunámi samkvæmt aðalnámskrá grunnskóla með framúrskarandi árangri áður en hann útskrifast þaðan, samanber eftirfarandi viðmið:

  • Nemandi uppfylli viðmið með hliðsjón af hæfniviðmiðum aðalnámskrár með mjög góðum árangri.

  • Nemandi hafi fengið náms- og starfsráðgjöf. 

  • Skólastjóri, umsjónarkennari og sérfræðiþjónusta telji útskrift ráðlega.

  • Nemandi hefur félagsþroska til að takast á við félagslegt umhverfi framhaldsskóla.

Nemendur sem ekki hafa lokið grunnskólanámi geta þó hafið nám í framhaldsskóla samhliða í samráði við foreldra, viðkomandi framhaldsskóla og viðkomandi sveitarfélag, þar sem ljóst er hvernig námið er formlega metið.

​Samkvæmt grunnskólalögum er gert ráð fyrir að nánar sé samið um framkvæmd og fyrirkomulag milli hlutaðeigandi grunn- og framhaldsskóla.

 Ákveði skólastjóri að synja foreldrum um útskrift úr grunnskóla áður en 10 ára skyldunámi er lokið geta foreldrar kært þá synjun grunnskóla til mennta- og menningarmálaráðuneytis sem úrskurðar í málinu.