Stærðfræði PALS

Við leggjum áherslu á fjölbreyttar kennsluaðferðir og er PALS ein af þeim. Rannsóknir á PALS aðferðinni í lestri og stærðfræði hafa staðfest að flestir nemendur, hvort sem þeir eru afburðanemendur, í meðallagi eða slakir, sýna meiri framfarir en þeir sem ekki fá PALS þjálfun. Það sama gildir um nemendur sem glíma við námsörðugleika.