Vel heppnaðir þemadgar um vináttu

Meðal verkefna voru hreyfing í íþróttahúsinu, gerð vináttusáttmála, bakstur fyrir jólakvöldið okkar, Quizlet og föndruð voru vináttuarmbönd. Nemendur unnu einnig með vináttuslagorð, gerðu kærleikstré og vináttuvegg. 

Þemadagarnir tókust mjög vel og ánægjulegt var að sjá nemendur vinna saman þvert á bekki, kynnast betur og efla vináttu og samheldni innan skólasamfélagsins.