Þann 8. júní 2026 fór fram útskrift 1.–10. bekkjar í sal skólans. Nemendur, foreldrar og aðrir aðstandendur komu saman til að fagna lokum skólaársins og þeim áfanga sem nemendur höfðu náð.
Athöfnin hófst með ávarpi Jóhönnu Guðnadóttur skólastjóra. Að því loknu sýndu nemendur í 10. bekk útskriftarmyndband sitt sem vakti mikla ánægju meðal gesta. Síðan komu nemendur hvers bekkjar upp á svið og tóku við vitnisburðarskjölum frá umsjónarkennurum sínum.
Í athöfninni voru lestrarvinunum á yngsta stigi þakkað starfið í vetur. Þrisvar í viku hafa lestrarvinir komið til okkar að hjálpa til við skólalestur. Viljum við starfsfólk enn og aftur þakka fyrir þessa ómetanlegu hjálp.
Að lokinni afhendingu vitnisburða flutti Jóhanna sérstakt ávarp til nemenda í 10. bekk sem voru að ljúka grunnskólagöngu sinni eftir tíu ára nám í skólanum. Þar voru þeim færðar þakkir fyrir samfylgdina og þeim óskað velfarnaðar á nýjum vettvangi.
Eftir athöfnina buðu nemendur í 10. bekk foreldrum sínum og aðstandendum til kaffisamsætis í tilefni útskriftarinnar.
Myndir frá athöfninni má sjá hér.