Upplestrarhátíð GF

 

Í dag var haldin upplestrarhátíð þar sem nemendur 7. bekkjar æfðu sig í upplestri fyrir foreldra og kennara í sal skólans. Nemendur stóðu sig með eindæmum vel og mega vera stoltir af frammistöðu sinni. Þeir hafa tekið miklum framförum í þessu ferli og hefur verið mjög gaman að fylgjast með þeim æfa sig í framsögn og framkomu. Það er óhætt að segja að margir sætir sigrar hafi unnist með þátttökunni því hugrekki og öryggi nemenda við að koma fram hefur aukist til muna. Þó svo að aðeins tveir hafi verið valdir til áframhaldandi þátttöku má segja að sigurvegararnir hafi verið mun fleiri.

Til hamingju nemendur í  7. bekk með glæsilega frammistöðu.

Dómnefndina skipuðu: Eygló Aðalsteinsdóttir, Berglind Ósk Agnarsdóttir og Valdimar Másson. 

Vinningshafar: Vöttur Þeyr Ívarsson og Sólný Petra Þorradóttir.

Varalið: María Lind Guðmundsdóttir og Ísafold Ýr Óðinsdóttir.

Við óskum þeim innilega til hamingju og hlökkum til að fylgjast með þeim í Upplestrareppni Austurlands í lok mars.

Fleiri myndir hér