Þemadagar og árshátíð í næstu viku

Í næstu viku, frá mánudegi til fimmtudags, eru þemadagar skólanum. Þá leggjum við hefðbundnar námsgreinar til hliðar og skóladagurinn hjá öllum er frá kl. 8.10 - 13.10. Þemadagarnir í ár verða fyrst og fremst helgaðir árshátíðarundirbúningnum. Árshátíðin sjálf er svo fimmtudagskvöldið 16. febrúar. Sá dagur er tvöfaldur þannig nemendur þurfa að mæta í skólann aftur um kvöldið.