Styrkleikar 2026

Nemendur í grunnskólanum á Fáskrúðsfirði tóku þátt í Styrkleikum Krabbameinsfélagsins og lögðu sitt af mörkum til að sýna stuðning og samstöðu með þeim sem hafa greinst með krabbamein og aðstandendum þeirra. 

Nemendur hlupu hringinn í kringum ósinn. Allt frá einum og upp í tíu hringi. 

Þetta var ánægjuleg stund þar sem hreyfingin var í fyrirrúmi.