Skólahald með hefðbundnum hætti á morgun

Ákvörðun hefur verið tekin um að skólahald í Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar verði með hefðbundnum hætti á morgun, miðvikudaginn 29. mars. Sérstaklega þarf að fara varlega um skólasvæðið og taka tillit til gangandi vegfaranda þar sem bílastæðið er í þrengra lagi vegna snjóa. Eins er mikilvægt  að fara ekki inn á afgirt svæði framan við gamla skólann og þar er ekki hægt að leggja bílum í bílastæðin eins og vanalega.