Skólabyrjun haust 2026

Starf grunnskóla Fáskrúðsfjarðar hefst með viðtölum fyrir nemendur og foreldra mánudaginn 24. ágúst. Opnað hefur verið fyrir bókun í viðtöl á Mentor. Ef einhverjir lenda í vandræðum með að bóka viðtöl má hafa samband við ritara í síma 4759020. Kennsla í skólunum hefst samkvæmt stundaskrá þriðjudaginn 25. ágúst.  

Miðað er við að frístund fyrir nemendur í 1.-4. bekk sé í boði á öllum nemendadögum skóla samkvæmt skóladagatali þ.m.t. foreldra/samtalsdaga. Skráning í frístund fer fram með tölvupósti til skólans fask@skolar.fjardabyggd.is sjá einnig póst frá Dagnýju til forráðamanna nemenda í 1.-4.bekk. 

Skóladagatöl eru á vef skólans og þar má m.a. sjá að vetrafrí verður 28. -30. október, 23. apríl og 7. maí. Síðasti kennsludagur fyrir jólaleyfi er 18. desember, starfsdagur verður í öllum skólum 25. september og sameiginlegur íþróttadagur eldri nemenda verður 5. maí og síðasti skóladagur ársins verður 8. júní. 

Hlökkum til að hitta ykkur mánudaginn 24.ágúst 2026 

Starfsfólk Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar