Rokkum í sokkum

Í dag fögnuðu nemendur og starfsfólk Alþjóðadegi Downs í ósamstæðum sokkum. Myndir frá deginum má sjá hér 

Á vef Ráðgjafar- og greiningarstöðvarinnar segir orðrétt um Alþjóðadag Downs:

Sameinuðu þjóðirnar lýstu því formlega yfir árið 2011 að 21. mars væri alþjóðadagur Downs heilkennis og með það að markmiði að auka vitund og minnka aðgreiningu. Dagsetningin er táknræn að því leiti að hún vísar til þess að Downs heilkenni er orsakað af auka litning í litningi 21, þ.e. 3 eintök af litning 21 - 21.03.