Opinber heimsókn forseta Íslands til Fjarðabyggðar

Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, mun koma í þriggja daga opinbera heimsókn til Fjarðabyggðar mánudaginn 8. maí næstkomandi.

Hann mun heimsækja öll hverfi Fjarðabyggðar og mun heimsækja Skólamiðstöðina á Fáskrúðsfirði kl. 13.30 þriðjudaginn 9. maí. Undanfarið hafa nemendur og starfsfólk undirbúið móttöku forsetans.

Þar sem skóladegi nemenda í 1. - 4. bekk er vanalega lokið kl. 13.10 höfum við ákveðið að lengja skóladaginn hjá þeim til kl. 14.00 svo þau fái tækifæri að hitta forsetann.