Gunnar Helgason í heimsókn í GF 7.11.2025

Gunnar Helgason kíkti til okkar í Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar í dag og las upp úr nýjustu bók sinni Birtingur og símabannið mikla.

Nemendur höfðu mjög gaman af lestrinum, myndasýningunni og leikrænum tilburðum sem fylgja því þegar Gunnar Helgason er að segja frá einhverju stórmerkilegu. Það voru fullt af spurningum úr sal og mikið hlegið. Við þökkum Gunnari kærlega fyrir heimsóknina.

Myndir frá heimsókninni má finna hér.