Öskudagur 2023

Það var mikið fjör í skólanum að venju á öskudaginn. Nemendur komu uppáklæddir í allskonar búningum. Nemendur lögðu svo út í vetrarveðrið og sungu sér til hita og fengu góðgæti í pokann sinn að launum. Í hádeginu komu nemendur síðan aftur upp í skóla í pylsupartý og eftir mat héldu nemendur niður í íþróttahús til að slá köttinn úr tunnunni. Það var svo sannarlega fjör í dag. 

Myndir frá öskudeginum