Ekkert skólahald í dag

Ekkert skólahald verður í leik- grunn-, og tónlistarskólum í Neskaupstað, á Eskifirði, og Fáskrúðsfirði eftir hádegið í dag. Rýmingu hefur ennþá ekki verið aflétt á Eskifirði og í Neskaupstað eins og staðan er og vegna fannfergis er færð á Fáskrúðsfirði enn afar þung. 

Tilkynningar varðandi skólahald á morgun, miðvikudaginn 29. mars verða sendar út í kvöld. 

Skólahald er með hefðbundnum hætti í leik- og grunn-, og tónlistarskólum á Reyðarfirði, Breiðdalsvík og Stöðvarfirði.