BRAS

Hér má sjá nemendur í 7. bekk að leika eldfjall í smiðju hjá rithöfundinum Gunnari Helgasyni.
Hér má sjá nemendur í 7. bekk að leika eldfjall í smiðju hjá rithöfundinum Gunnari Helgasyni.

Í tengslum við barna- og ungmennahátíðina BRAS heldur Menningarstofa Fjarðabyggðar Smiðjudaga í skólum Fjarðabyggðar dagana 3. – 7. september. Þar fá börn og ungmenni tækifæri til að kynnast listsköpun í sem víðustu samhengi. Einnig verða haldnir umræðufundir fyrir foreldra um nám gegnum skapandi ferli, og 8. september verður fjölskylduhátíðin BRASILÍA í Tónlistarmiðstöð Austurlands á Eskifirði.