Börnin bjarga

Börnin bjarga er fastur liður í fræðslu skólahjúkrunarfræðinga á vegum heilsugæslu. Fræðslan fjallar um mikilvægi þess að temja sér rétt viðbrögð við hjartastoppi en þau felast ma í því að kanna áreiti, hringja á hjálp, opna öndunarveg og loks hjartahnoð. Í nóvember fóru krakkarnir á unglingastigi í verklegar æfingar þar sem þau æfðu þessi viðbrögð og framkvæmdu hjartahnoð á æfingadúkkum. Við kennsluna í 9. og 10. bekk fengum við aðstoð sjúkraflutningamanna og fengu krakkarnir að skoða sjúkrabílinn að lokinni fræðslu.