Árshátíðin

Á fimmtudaginn kl. 18.00 er árshátíðin. Hún er stór viðburður í skólastarfinu þar sem allt skólasamfélagið leggur mikið undir. Að þessu sinni sýnum við Coco en sýningin er byggð samnefndri kvikmynd frá árinu 2017. Við hvetjum sem flesta til að koma á sýninguna og njóta stundarinnar með okkur.  Að þessu sinni er aðgangur ókeypis en tekið við frjálsum framlögum. Allur ágóði rennur til skapandi starfs í skólanum. Núverandi 8. bekkur mun selja veitingar í hléi. 

Hlökkum til að sjá ykkur!