Öskudagur 2026 í Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar

Öskudagurinn var haldinn hátíðlegur í Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar með mikilli gleði og skemmtilegri stemningu. Nemendur og starfsfólk skólans mættu í alls konar litríkum og skemmtilegum búningum og settu svip á daginn.

Dagurinn hófst með stuð og skemmtilegum verkefnum í stofum með umsjónarkennurum. 

Næst gengu nemendur um bæinn, sungu fyrir fyrirtæki og fengu í staðinn nammi og annað gotterí, eins og hefð er fyrir á öskudegi. Það var ánægjulegt að sjá hversu vel fyrirtæki tóku á móti hópunum og þökkum við kærlega fyrir hlýjar móttökur.

Þá var komið aftur í skólann þar sem nemendur fengu hádegismat. Eftir matinn tók við fjörug dagskrá í íþróttahúsinu þar sem kötturinn var sleginn úr tunnunni og nemendur spreyttu sig á skemmtilegri þrautabraut.

Myndir frá deginum má sjá hér.