Bleiki dagurinn 2026

Nemendur og starfsfólk grunnskólans á Fáskrúðsfirði tóku þátt í Bleika deginum 2026 með fjölbreyttum og skemmtilegum verkefnum.  

Boðið var upp á ýmsar stöðvar þar sem nemendur gátu perlað, látið naglalakka sig, búið til armbönd og litað bleiku slaufuna. Einnig tóku allir í skólanum þátt í sameiginlegur verkefni þar sem fingraför voru stimpluð á léreft. Þegar verkið verður fullgert og hengt upp þá mun það minna okkur á samstöðu og mikilvægi þess að standa saman. 

Dagurinn heppnaðist vel og var skemmtileg leið til þess að sýna stuðning, efla samkennd og skapar góðar stundir í skólanum.