|
Fréttir fyrri ára
Skólaárið 2009-2010
Skólaárið 2008-2009
Skólaárið 2007-2008
Skólaárið
2006-2007
Enn eldri
fréttir
Vor 2006
(24.05.06)
Skólaferðalag 9. og 10. bekkjar
Nemendur í 10. bekk fóru í 10 daga skólaferðalag til Malorca með viðkomu í
Danmörku. Ferðin heppnaðist í alla staði mjög vel. Þessir nemendur
fóru ekki í skólaferðalag í 9. bekk eins og hefð er fyrir við GF.
Nemendur í 9. bekk fóru í
skólaferðalag til Danmerkur 22.-28. maí, þau dvöldu í Lalandia á Lálandi.
Ferðin gekk mjög vel og var ferðast talsvert um í bílaleigubílum m.a.
skroppið til Þýskalands og Kaupmannahafnar þar sem farið var í Tívolí og
Strikið skoðað. Það er aldrei að vita nema þau hafi lært eitt og eitt
nýtt orð í dönsku í leiðinni.
(24.05.06) Vordagar í GF
Fimmtudagur 25. maí
er uppstigningardagur og því frí í skólanum.
Föstudagur 26. maí er starfsdagur
kennara og frí hjá nemendum.
Mánudagur 29. maí er ferðadagur
Yngsta stig
fer í rútuferð til Stöðvarfjarðar þar sem Steinasafn Petru verður skoðað og
síðan verður farið í sund á Breiðdalsvík og snædd pizza á Hótel Bláfelli.
Nemendur þurfa að hafa með sér sundföt og 700 krónur fyrir pizzunni
og sundinu.
Lagt verður af stað frá skólanum kl. 8:00 og er
heimkoma áætluð kl. 13:30
Miðstig, 7. bekkur, 8. bekkur og 10. bekkur
fara í rútuferð á Egilsstaði þar sem Minjasafnið verður skoðað og einnig
verður farið í sund. Á heimleið verður snædd pizza á Tærgesen. Nemendur
þurfa að hafa með sér sundföt, hollt og gott nesti og 750 krónur
fyrir sundinu og pizzunni.
Lagt verður af stað frá skólanum kl. 9:00 og
áætluð heimkoma er um kl. 15:00.
9. bekkur
fær að lúra á mánudeginum því þau koma heim frá Danmörku aðfaranótt 29.
maí.
Þriðjudagur 30. maí. Leikir,
þrautir, eggjafall og kaffihús.
Allir mæti í skólann kl. 8:00
og farið verður í ýmsa leiki og þrautir sem nemendur eru búnir að velja
sér. Nemendur þurfa að koma klæddir eftir veðri. Hádegishlé verður tekið
milli kl 12 og 13 og síðan er haldið áfram til kl. 14:30. Þeir sem
taka þátt í veiði þurfa að hafa veiðistöng. Eggjafall verður þennan dag og
hér á eftir er nánari skýring á því.
Eggjafall
Markmiðið með eggjafalli er búa svo vel um 2
egg að þó að þau séu látin falla til jarðar úr nokkurri (2-3 m) hæð þá
brotni þau ekki.
Reglur:
Eggin þurfa að vera tvö í sömu öskjunni.
Askjan
(umbúðirnar) má ekki vera meiri en 20x20x20 cm.
Eggin þurfa að vera hrá. Athugið að gengið
verður úr skugga um það eftir að eggin hafa verið látin falla.
Þetta er aðeins gert til skemmtunar og engin
verðlaun eru í boði, einungis ánægjan af að hafa hannað svo flottar umbúðir
að egg brotni ekki í þeim þó þeim sé fleygt fram af húsvegg.
Miðvikudagur 31. maí. Frágangur,
notalegheit, grill, gleði og skólaslit
Allir mæti í skólann kl 8:00.
Umsjónarkennarar eiga stund með nemendum sínum til kl 09:30. Þá verður
farið út og farið í ýmsa leiki, nemendur, kennarar og foreldrar. FORELDRAR
eru hvattir til að mæta og vera með. Grillað verður í boði skólans. Áætlað
að þessu ljúki um 12:00 og síðan eru skólaslit í
Skrúð kl 18:00.
(18.05.06)
Tilkynning fá Foreldrafélagi GF
Foreldrafélag GF vill
minna á að með fréttabréfinu sem við gáfum út kom beiðni um framlag til
félagsins kr.500.- pr.heimili. Ekki hafa verið góðar heimtur á þessu
framlagi og viljum við endilega setja bankanúmerið okkar hér fram ef einhver
ætlar að borga.
Reikn.nr. 0171-05-62006 kt.681088-6369. Þetta er hugsað til að standa
straum af þeim kostnaði sem tilfellur við rekstur svona félags.
Svo óskum við öllum
gleðilegs sumar og hlökkum til samstarfs á næsta skólaári.
Stjórnin
(16.05.06) Hjóladagur
Fimmtudaginn 18. maí verður hjóladagur hjá
okkur í samstarfi við Lögregluna á Fáskrúðsfirði og Slysavarnardeildina
Hafdísi frá kl 11:10-12. Farið verður í hjólaþrautir og löggan skoðar hjól
þeirra sem vilja. Yngsta stig og Miðstig tekur allt þátt í hjóladeginum og
þeir sem vilja í eldri bekkjum.
(11.05.06) Hjólreiðar
Síðustu daga hafa nemendur og starfsfólk verði
mjög dugleg að nota hjóla til að ferðast úr og í skóla. Til að
hjólreiðarnar verði skemmtilegar er nauðsynlegt að við förum öll eftir
ákveðnum reglum. Þeir sem nota hjól við skólann noti sitt eigið
hjól og séu með hjálm. Ekki er ætlast til að hjólað sé í leik á malbiki
framan við útidyr að austan. Hins vegar má hjóla annars staðar á
skólalóðinni en hjólreiðafólk þarf að gæta að tillitsemi við gangandi
vegfarendur og víkja fyrir bílum.
(10.05.06) Námsmat og vorpróf
2006
Eins og allir vita vonandi
erum við í GF að vinna að breyttu námsmati. Því verða ekki hefðbundin
vorpróf í öllum fögum, en þó í einhverjum.
Vegna tímasetningar á
skólaferðalögum 9. og 10. bekkjar þá breyttum við prófadögum hjá þeim og
verða próf hjá þeim sem hér segir:
10. bekkur:
Athugið að prófin verða tekin
á skólatíma fyrir hádegi og því er kennsla að öðru leyti. Skóladagur 10.
bekkinga verður frá 8-12 þessa daga nema 24. maí er munnlegt próf í ensku
eftir hádegi.
22. maí mánudagur danska
23. maí þriðjudagur
náttúrufræði
24. maí miðvikudagur
íslenska
24. maí miðvikudagur eftir
hádegi
munnleg enska
9. bekkur:
Athugið að prófin verða tekin
á skólatíma fyrir hádegi og því er kennsla að öðru leyti. Skóladagur 9. bekkinga verður frá 8-12 þessa daga.
15. maí mánudagur
danska
16. maí þriðjudagur
þjóðfélagsfræði
17. maí miðvikudagur
munnleg enska
18. maí
fimmtudagur íslenska
19. maí föstudagur
náttúrufræði
Próf hjá 7. og 8. bekk
verða á áður auglýstum prófadögum 18. - 24. maí.
Prófin verða tekin á skólatíma fyrir hádegi og því er kennsla að öðru leyti.
Skóladagur 7. og 8. bekkinga verður frá 8-12 þessa daga.
8. bekkur:
18. maí fimmtudagur
danska
19. maí föstudagur
enska
22.
maí mánudagur
23. maí þriðjudagur
íslenska fyrir hádegi og tölvur eftir hádegi
24. maí miðvikudagur
landafræði
7. bekkur:
18. maí fimmtudagur
danska
19. maí föstudagur
22.
maí mánudagur
23. maí þriðjudagur
íslenska fyrir hádegi og tölvur eftir hádegi
24. maí miðvikudagur
enska
Á Miðstigi og Yngsta
stigi
verða ekki hefðbundin próf og því verður kennsla með “eðlilegum” hætti og
stundatafla þeirra breytist EKKI.
Minnum einnig á að 26. maí er
starfsdagur kennara og að hinir FRÁBÆRU VORDAGAR skólans verða 29. og 30.
maí. Grill og gleði síðan að morgni 31. maí og skólaslitin
seinnipartinn.
(08.05.06) Fréttir
frá Yngsta
stigi
Viðurkenningar fyrir
þátttöku í teiknisamkeppi Landsvirkjunar

Nemendur Yngsta stigs tóku þátt í teiknisamkeppni á vegum
Landsvirkjunar í vetur. Þau teiknuðu myndir við smásöguna um Rabba rafeind
sem er eftir Yrsu Sigurðardóttir. Landsvirkjun sendi þeim öllum bol í
þakklætisskyni fyrir þátttökuna. Tveir nemendur, þau Sigurbjörg og
Alfreð Steinn voru svo heppin að vinna í samkeppninni og fara þau og leggja
hornstein að Kárahnjúkavirkjun með forseta Íslands næst komandi föstudag,
þann 12. maí.
Yngstu
nemendurnir fengu reiðhjólahjálma að gjöf
Tveir lögreglumenn komu í heimsókn og afhentu hjálma sem eru
gjöf frá Kiwanishreyfingunni á Íslandi til allra 7 ára barna í landinu .
Þeir hjálpuðu nemendum að stilla þá rétt og ræddu um mikilvægi
hjálmanotkunar við nemendur.
Heimsókn í vinnubúðirnar í Haga Reyðarfirði

Fimmtudaginn 27. apríl fóru nemendur á Yngsta
stigi í rútuferð ásamt elsta árgangi leikskólans í heimsókn í Haga,
vinnubúðirnar við álverið í Reyðarfirði. Þær Brynhildur Einarsdóttir og Þórunn María
Þorgrímsdóttir sem starfa hjá ESS tóku vel á móti okkur. Boðið var upp á
pítsu og gos í þakklætisskyni fyrir myndir sem nemendur teiknuðu fyrir þau í
tengslum við fiskidaga sem eru í vinnubúðunum þessa dagana. Einnig fengu allir páskaegg að gjöf.
Allir skemmtu sér hið besta og nokkrir
krakkar prufuðu enskukunnáttu sína (og þeirra) og “spjölluðu” við
starfsfólk.
(27.04.06) Vel heppnuð Árshátíð GF
Árshátið
Gf var haldin miðvikudagskvöldið 26. apríl í félagsheimilinu Skrúð.
Þar voru sýndir leikþættir bæði klassískir og frumsamdir, það var sungið og
dansað, ýmsar útgáfur af stuttmyndum voru sýndar. Á myndböndunum voru m.a.
leikþættir sem síðan voru fléttaðir inn í leikatriði á sviðinu, á öðrum
myndböndum sást þegar samnemendur og bæjabúar voru hrekktir góðlátlega í
anda "punked" og loks sáum við brot úr frægri teiknimynd sem var búið að
talsetja upp á nýtt. Mikil vinna liggur að baki öllum þessum atriðum
hjá nemendum og óskum við þeim til hamingju með vel heppnaða skemmtun.
Í hléi
seldu 9. bekkingar kaffi, pizzasnúða og kleinur, með aðstoð foreldra.
Loks má geta þess að á
árshátíðinni voru vígðir nýir glæsilegir stólar í félagsheimilin sem
reyndust mjög vel.
Dagsetningar samræmdra prófa vorið 2006.
|
Íslenska
|
miðvikudagur |
3. maí
|
kl. 09:00
- 12:00 |
|
Enska
|
fimmtudagur |
4. maí
|
kl. 09:00
- 12:00 |
|
Danska |
föstudagur |
5. maí
|
kl. 09:00
- 12:00 |
|
Samfélagsgreinar |
mánudagur |
8. maí
|
kl. 09:00
- 12:00 |
|
Náttúrufræði |
þriðjudagur |
9. maí
|
kl. 09:00
- 12:00 |
|
Stærðfræði |
miðvikudagur |
10. maí
|
kl. 09:00
- 12:00 |
Gleðilegt sumar
(18.04.06) Árshátíð GF
verður haldin miðvikudaginn 26. apríl kl.
19:30 í Skrúð, aðgangseyrir er kr. 700 fyrir fullorðna. Selt verður
kaffi í hléi.
Allar tekjur af
árshátíðinni renna í ferðasjóð 9. bekkjar. Allir velkomnir.
(05.04.06)
Margt er um að vera hjá nemendum og starfsfólki
Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar þessa dagana
Tónlist fyrir alla
Föstudaginn 7.apríl eiga allir nemendur að mæta í Skrúð kl: 08:00 þangað
ætlar Egill Ólafsson ásamt fríðu föruneyti að koma og flytja nokkur lög
fyrir okkur. Foreldrar eru hjartanlega velkomnir með börnum sínum. Að
loknum tónleikunum er hefðbundin kennsla.
Skíðaferð
Við í GF fórum í skíðaferð í Oddsskarðið þriðjudaginn 4. apríl. Allt
starfsfólk og langflestir nemendur fóru með nesti og skíðaútbúnað af ýmsu
tagi með í för. Við fengum hið besta veður, hitinn yfir frostmarki og blankalogn.
Báðar lyfturnar voru opnar og renndu allir sér af mikilli snilld, á skíðum,
brettum og snjóþotum allt
til kl 16:00. Margir nemendur stigu þarna á skíði í fyrsta skipti enda
ekki verið mikill skíðasnjór síðustu árin. Nemendur okkar voru skólanum til mikils sóma og við nutum öll
ferðarinnar í botn.
Lokahátíð Stóru
Upplestarkeppninnar í 7. bekk
var haldin á Breiðdalsvík,
þriðjudaginn 4. apríl. Fulltrúi GF Sindri Már sigraði í keppninni sem
var samkvæmt venju mjög jöfn og margir góðir upplesarar sem þar komu fram.
Þess má til gamans geta að þetta er þriðja árið í röð sem fulltrúar GF ná
fyrsta sæti í þessari keppni, í fyrra var það Tanja Rún og þar áður Valtýr
Aron.
Til hamingju með
árangurinn Sindri Már.
Fiskar
Í lok mars færði áhöfnin á
Ljósafellinu nemendum á Miðstigi sýnishorn af afla síðustu veiðiferðar.
Nemendur unnu síðan með aflann í náttúrufræði, þar reyndust vera 16
tegundir af fiskum auk krabbadýra, krossfiska og ígulkerja. Fiskarnir voru
þorskur, ýsa, langa, hrognkelsi, keila, lýsa, sólkoli, sandkoli, skötuselur,
karfi, steinbítur, ufsi, tindabikkja, gulllax og svo voru tveir verulega
skrýtnir fiskar geirnyt og sænál.
Þegar Miðstigið var búið að
skoða fiskana þá fengu nemendur á Yngsta stigi þá til skoðunar og loks
börnin í Leiksskólanum Kærabæ.
Færum við áhöfninni á
Ljósafellinu bestu þakkir fyrir.
Páskafrí
Páskafrí hefst mánudaginn 10.apríl og kennsla hefst að nýju
miðvikudaginn 19. apríl kl. 9:50.
Gleðilega páska.
(30.03.06)
Skíðaferð
Veðurspá fyrir þessa
vikuna er ekki sérstaklega góð. Það spáir heldur betur eftir helgi og þrátt
fyrir árshátíðarannir þá vikuna þá stefnum við á skíðaferð í Oddsskarð
þriðjudaginn 4.apríl,- enn og aftur með fyrirvara um gott veður ;)
(27.03.06) Fundarboð til
foreldra, forráðamanna, bæjarbúa og allra þeirra
sem stendur ekki á sama um einelti
Fundur um eineltismál verður haldinn
fimmtudaginn 30. mars kl. 20:00 – 21:30 í Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar
Dagskrá:
1. Hvað er
Olweus? Kynning á Olweusarverkefninu Gegn einelti
2. Skólinn og einelti.
Hvað er skólinn að gera í málunum?
3. Samfélagið og
einelti. Málin rædd; hvað er hægt að gera og hvert á að snúa sér.
Hlé Kaffi og meðlæti
4. Er einelti í
okkar skóla?
Niðurstöður úr könnun kynntar:
Hversu mikið einelti er í okkar skóla, hvernig einelti,
hvar og hvenær?
Vonumst til að sjá sem flesta því allir eru hjartanlega velkomnir
ÞETTA SKIPTIR MÁLI !
(27.03.06) Skíðaferð
Þriðjudaginn
28. mars er fyrirhugað að fara í skíðaferð í Oddsskarð. Lagt verður af stað
um 9:45 og því kennt fram að frímínútum. Við komum ekki heim
fyrr en seinnipartinn og fer heimkoman alveg eftir veðri og áhuga.
 |
Mikilvægt er að allir
séu vel útbúnir með skíði - bretti - snjóþotu eða sleða. |
 |
Einnig er mjög
mikilvægt að vera vel klædd og með föt til skiptana.
|
 |
Nauðsynlegt er að hafa
gott / hollt / mikið nesti með og athugið að ekki er víst að sjoppan í
Skíðaskálanum verði opin. |
 |
Skólinn borgar rútuna
en í lyfturnar kostar 500 krónur sem nemendur greiða. Ef nemandi
forfallast þarf foreldri að hafa samband við skólann. |
 |
Athugið að skólareglur
gilda í ferðum á vegum skólans. |
(24.03.06)
Lokahátíð Stóru
Upplestarkeppninnar verður á Breiðdalsvík, miðvikudaginn 29.mars kl.
18:00. Fyrir okkar hönd keppa þau Sindri Már og Karín Mist. Óskum við
þeim góðs gengis og skemmtunar. Léttar veitingar verða í hléi, hefðbundin
kókómjólk og kleinur.
Bílaumferð
við skólann. Nú er búið að breyta akstursstefnunni við skólann
okkar. Komin er einstefna fyrir neðan hann þannig að þegar er keyrt upp á
bílaplanið utan við skólann (að austan) þá má ekki snúa við þar heldur þarf
að keyra innúr, fyrir neðan aðaldyrnar og niður fyrir innan (vestan). Fyrir
innan skólann er ekki ætlast til að sé keyrt upp enda orðin einstefna.
Kennarar á Yngsta
stigi. Heiðrún okkar, umsjónarkennari á Yngsta stigi fer í
fæðingarorlof mánudaginn 27. mars. Í hennar stað verður Elsa Sigrún
umsjónarkennari á Yngsta stigi ásamt Gunnu. Heiðrúnu þökkum við frábær störf
og óskum henni góðs gengis í nýju hlutverki og hlökkum til að fá hana aftur
til okkar að ári. Að sjálfsögðu látum við vita hér á heimasíðunni þegar hún
verður orðin léttari.
(20.03.06) Alda og Skjalda
Það er
nýbúið að setja upp vatnsvél í skólanum og hefur hún fengið nafnið
Alda. Alda er staðsett við hliðina á mjólkurkælinum Skjöldu, framan
við kennarastofuna. Nemendur sem vilja nýta sér vatnsvélina, eru
hvattir til að hafa með sér góðan vatnsbrúsa í skólann og merkja hann vel.
Alda býður upp á kalt vatn, aðeins kaldara vatn og kolsýrt vatn.
Skjalda býður aftur á móti, upp á vel kælda mjólk og nemendur geta gerst
áskrifendur að mjólk hjá ritara.
(20.03.06)
Fréttir af miðstigi
Vikurnar 13.-24.
mars er Bylgja í æfingakennslu á yngsta stigi og í staðinn sinna 3
kennaranemar kennslu á miðstigi með Írisi. Þessa daga er ekki hefðbundin
kennsla í íslensku- og stærðfræðitímum og einnig verður breyting á í nokkrum
ensku- og náttúrufræðitímum.
Þann 15. mars
fóru náttúrufræðikennarar ásamt kennaranemunum, með nemendum miðstigs í
fjöruferð í tengslum við vinnu með námsefnið Lífríkið í sjó. Ferðin gekk
mjög vel nemendur fundu fjölbreyttar lífverur í fjörunni við Vík og einnig
var litið þarann, í og við Söxu. Myndir úr ferðinni og annarri
náttúrufræðivinnu í vetur má sjá
hér.
Nú er
kominn örbylgjuofn í stofuna hjá miðstigi, ef nemendur koma með brauð til
hitunar þarf það að vera í plastpoka svo að þrif á ofninum verði léttari.
Einnig kom Guðmar Elís með samlokugrill fyrir stuttu síðan og var svo
almennilegur að gefa öllum nemendum kost á að hita sér samloku þar. Það
gerum við þannig að borð nr. 1 fær að hita í grillinu á mánudögum og svo
koll af kolli. Nemendur vita alltaf á föstudögum við hvaða borð þeir muni
sitja í næstu viku.
(13.03.06) Stóra
upplestrarkeppnin

Fimmtudaginn 9. mars fór
Stóra upplestrarkeppnin fram í Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar. Þetta
var hátíðleg stund þar sem nemendur 7. bekkjar fluttu sögu og ljóð fyrir
gesti. Dómnefndar beið erfitt verk að skera úr um hver færi með sigur af
hólmi en þó fór svo að lokum að Karín Mist Kjerúlf og Sindri Már Smárason
stóðu uppi sem sigurvegarar. Þau koma til með að keppa fyrir hönd skólans á
Breiðdalsvík miðvikudaginn 29. mars. Varamenn eru Sigdís Telma Gunnarsdóttir
og Birna Dögg Guðmundsdóttir. Við óskum öllum í 7. bekk til hamingju með
frábæra frammistöðu. Til gamans má geta þess að Björn Sævar Eggertsson las
frumsamið ljóð eftir afa sinn, Björn Þorsteinssson.
Farið í skólann
Ég kveiki mitt ljós er
klukkan hrín,
og klæði mig svo með
hraði,
því skólabíllinn hann
bíður mín,
bráðlega úti á hlaði.
Svo ekið er rakleitt inn á
Strönd,
þar árnar í gljúfrum
falla,
með ljósadýrðina á hægri
hönd,
um Hólmabyggðina alla.
Nú förum við hægt í gegnum
göng,
sem gerð voru í fjallið
harða,
svo núna er ekki lengur
löng,
leiðin á milli fjarða.
Í Dölum og Tungu þarf
aðeins á,
þau Elís og Jónu taka.
Við saman þá viljum spyrja
spá,
og spjalla án allra raka.
Og heim að skólanum ekið
er,
þá allt er í lagi kláru,
en bílstjórinn með okkar
föggur fer,
í forstofuna hjá Láru.
Björn Þorsteinsson
(13.03.06)
Heimsókn
í ME
Mánudaginn 6. mars
heimsóttu nemendur okkar úr 9. og 10. bekk
Menntaskólann á Egilsstöðum. Kolbrún Björnsdóttir námsráðgjafi tók á
móti krökkunum ásamt hressum ME nemum frá Fáskrúðsfirði. Eftir að hafa
skoðað húsakynni og lært á þvottavélina hjá þeim Ragnari, Snorra og Ómari
kynnti Kolbrún námsframboðið í skólanum og útskýrði samsetningu náms á
mismunandi brautum. Síðan komu fulltrúar frá nemendafélaginu og kynntu
félagslífið. Eftir kynningarnar var nemendum boðið upp á hressingu,
nýbakaða gersnúða og drykk. Ferðin gekk í alla staði vel og krakkarnir voru
til fyrirmyndar.
(28.02.06) Öskudagurinn
Öskudaginn
1. mars
verður öskudagsgleði í skólanum. Allir mæta í grímubúningum í skólann á
venjulegum tíma og verður hefðbundin kennsla fyrstu tvær kennslustundirnar.
Klukkan 10:00 verður farið inn í íþróttahús þar sem börnin slá köttinn úr
tunnunni og fara í leiki. Nemendur taka skólatöskurnar með sér í
íþróttahúsið og þangað er hægt að sækja börnin kl. 12:00.
Nemendur í
7. bekk eru að undirbúa öskudagsgöngu eftir hádegið. Þau ætla að mæta við
skólann kl. 13:30 og heimsækja síðan nokkur fyrirtæki. Áríðandi er að börnin
verði vel klædd undir búningunum.
Athugið gangan
eftir hádegi er ekki á vegum skólans.
(28.02.06)
Foreldrastarf á Yngsta stigi
Foreldrastarf á Yngsta stigi hefur gengið vel í vetur. Í upphafi skólaársins
skiptu
kennarar
foreldrum í hópa og báðu um að foreldrarnir sæju um einhverja uppákomu fyrir
börnin og jafnvel foreldrana í ákveðnum mánuðum. Foreldrarnir hafa tekið vel
í þetta og staðið fyrir ýmsri skemmtan. Á dögunum nýtti febrúarhópurinn sér
góða veðrið og boðaði nemendur Yngsta stigs og foreldra þeirra í leiki á
gervigrasvöllinn. Það er skemmst frá því að segja að allir virtust skemmta
sér hið besta og sáust fræknir og föngulegir foreldrar jafnt sem börnum sína
íþróttatakta. Höfðu nokkrir foreldranna á orði að þeir hefðu ekki
hreyft sig jafnmikið frá barnæsku og uppskáru harðsperrur fyrir vikið. Þegar
allir höfðu leikið sér af lyst þá var farið inní skóla þar sem
sagnameistarinn Berglind Agnarsdóttir lét móðan mása og allir hlustuðu af
innlifun,- enda ekki annað hægt þegar magnaðar draugasögur er á ferðinni.
Fleiri myndir.
(17.02.06) Bekkjarkvöld hjá 7. bekk
Miðvikudagskvöldið 15.
febrúar var bekkjarkvöld hjá 7. bekk. Tilefni var að bekkurinn hefur
verið laus við einelti síðustu vikur. Strákarnir mættu sem hippar og
stelpurnar sem 80´s gellur. Krakkarnir skemmtu sér mjög vel og kvöldið þótti
takast vel. Hér er nokkrar
flottar myndir.
(13.02.06) Stofnun Foreldrafélags GF

Foreldrafélag
Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar var stofnað 7.febrúar 2006. Um 25% foreldra mættu
og var hugur í fólki með þetta samstarf. Í undirbúningsnefnd voru foreldrar
sem flest höfðu reynslu af svona starfi, og gáfu þau flest öll kost á sér í
fyrstu stjórn. Á fundinn mætti Maríanna Jóhannsdóttir varaformaður Heimili
og skóla og sagði okkur frá: Hvers vegna foreldrafélag? Einnig
kynnti Lára Björnsdóttir fulltrúi í foreldraráði, hlutverk vað foreldraráðs.
Farið var yfir tillögu af lögum og þau samþykkt. Skólinn bauð okkur svo upp
á kaffi og nýbakaðar kleinur sem 9. bekkur er að selja í fjáröflun fyrir
vorferðalagi.
(9.02.06) Heimsókn í Verkmenntaskóla
Austurlands
Mánudaginn 6. febrúar fóru nemendur 9. og 10.
bekkjar í heimsókn í Verkmenntaskóla Austurlands
í Neskaupstað. Farið var með rútu strax kl. 8:00 um morguninn. Bæði
kennarar og nemendur í VA tóku vel á móti okkar fólki og kynntu skólann,
bæði námsframboð og húsakynni. Voru nemendur GF fyrirmyndar gestir í alla
staði og skólanum til sóma. Vonandi hafa þau bæði haft gagn og gaman af.
(1.02.06)
Íþróttadagar
Íþróttadagur verður hjá Miðstigi, 7. 8.
9. og 10. bekk fyrir hádegi fimmtudaginn 2. febrúar. Hefðbundin
kennsla verður eftir hádegi. Föstudaginn 3. febrúar verður
íþróttadagur hjá Yngsta stigi og elsta árgangi leikskólans frá 9:50 til
12:00.
Nemendur munið eftir viðeigandi
klæðnaði.

Við bendum á að hægt verður að fylgjast með ráðsefnunni í beinni útsendingu
á vefsíðu SAFT.
(1.02.06) Myndmennt í 7.
og 8. bekk
Þessa dagana eru nemendur í 7. bekk
að læra um Vincent van Gogh í myndmennt og nemendur 8. bekkjar um Leonardó
da Vincí. Nemendurnir læra um lífshlaup þeirra og listaverk. Skoða myndir
þeirra og skapa síðan sínar myndir í þeirra anda. Nú þegar eru komnar margar
Stjörnunætur upp á vegg og Monu Lísur. Við höfum nýtt okkur frábæran listvef
á vegum Námsgagnastofnunnar og hvetjum foreldra til að kíkja á
http://www.namsgagnastofnun.is/norsk_kunstweb/
(1.02.06) Ný tímatafla fyrir
heimanám.
|
Mánudagur |
Þriðjudagur |
Miðvikudagur |
Fimmtudagur |
Föstudagur |
|
Kl.
14:30-15:10
(annan hvern mánudag)
Viðar |
Kl.
15:20-16:00
Íris |
Kl.
15:00 – 15:40
Halldóra |
Kl.
15:50-16:30
Vilberg |
Ekki
heimanám |
(25.01.06) Foreldradagur
og aðgangur að upplýsingakerfinu Mentor
Þann 24. janúar var foreldradagur í skólanum. Nemendur fengu námsmat
haustannar og spjall við umsjónarkennara sinn með foreldri. Foreldrar fengu
afhent aðgangsorð og lykilorð að Mentor og þar geta þeir sé ástundun og
einkunnir barna sinna,- námsáætlanir frá kennurum og jafnvel
heimavinnuáætlanir. Einnig geta foreldrar séð ýmsar fréttir og tilkynningar
eins og þessa hér sem sett var inn á Mentor líka. Foreldrar þurfa þó að
athuga að kennararnir eru enn að læra á kerfið og tileinka sér það og
heimavinnuáætlanir og námsáætlanir koma smá saman inn. Góða skemmtun
við vafrið í Mentor.
(25.01.06) Bilun
í tölvukerfi GF
Vegna bilunar í tölvukerfi GF hefur
vefurinn www.gf.is legið niðri í 10 daga en
nú á hann að vera komin aftur í gott lag. Tölvupóstur GF bilaði
einnig og því gæti einhver póstur sem sendur var til starfsmanna GF á
tímabilinu 12.-18. janúar hafa tapast.
(10.01.06) Skólastarf
GF hófst af krafti 5. janúar og nú eru próf að hefjast
Nemendur GF mættu í skólann 5. janúar,
endurnærðir eftir jólafríið en pínulítið syfjaðir eins og gengur í
skammdeginu. Starfsfólk GF hóf nýtt ár á því að sitja námskeið um
námsmat, er það liður í þróunarverkefni sem nú er unnið að í skólanum.
Verkefnið gengur út að aðlaga námsmatið í GF betur einstaklingsmiðuðu námi.
Nýtt starfsfólk bættist í hópinn
um áramót og eru það stuðningsfulltrúarnir Sigurveig Rósa Agnarsdóttir
og Helga Ósk Þórormsdóttir
og sérkennarinn Ómar Ármannsson og eru þau boðin velkomin til
starfa.
Nemendur skólans eru nú 93, en 7
nemendur hafa bæst í hópinn eftir að skóli hófst s.l. haust. Bjóðum við þessa nýju nemendur okkar sérstaklega velkomna og
vonum að þeim líki vel hjá okkur.
Prófdagar eru framundan en þar
sem námsmat í mörgum greinum fer fram jafnt og þétt yfir veturinn, breytist
tímarammi stundatöflu ekki þessa daga. Nemendur á unglingastigi taka í
próf í kennslustundum samkvæmt töflu sem þeir hafa fengið í hendur.
Frítt er í heimanámstímana þessa viku og eru allir nemendur hvattir til að
nýta þá aðstoð sem þar er í boði.
(03.01.06) Gleðilegt nýtt ár!
Fyrsti skóladagurinn á árinu 2006 er fimmtudagurinn 5.
janúar og hefst kennsla kl. 9:50.
Haust 2005
(15.12.05)
Litlu jólin
Þriðjudaginn 20. desember verða Litlu jólin haldin hátíðleg
í Grunnskólanum. Börnin eiga að mæta kl: 8:00, þá ætlum við að skoða
jólapóstinn, hlusta á jólasögu og dansa í kringum jólatréð. Við ætlum að
skiptast á jólagjöfum og því eiga börnin að koma með jólapakka (má kosta
allt að 500 kr.). Skólinn býður upp á veitingar og nemendur mega koma með
kerti.
(15.12.05)
Jólavinna og jólakvöld
myndir
Í desember hafa
verið unnin ýmis verkefni tengd jólunum. Yngstu nemendur skólans sóttu
jólatré í byrjun desember ásamt elstu nemendum leikskólans.
Á Yngsta
stigi hafa verið gerðar jólagrafíkmyndir, skrifaðar jólasögur, búin til
jólakort og hlustað á jólasögur og jólatónlist.
Á Miðstigi
var unnið þemaverkefni um jólahald fjölskyldunnar og m.a. reiknað út hvað
það kostar fyrir 5 manna fjölskyldu að halda jól. Nemendur á miðstigi settu
saman hefti með ýmsum jólaverkefnum, bjuggu til jólakort og föndruðu.
Nemendur á
unglingastigi nota tvo síðustu skóladagana fyrir jól til að vinna
jólaverkefni; búa til konfekt, vinna jólakort, föndra og vera úti.
Þriðjudaginn 13. desember var hið
hefðbundna jólakvöld GF haldið . Yngri nemendur spiluðu og horfðu á jólamynd
og eldri nemendur spiluðu félagsvist og síðan drukku allir súkkulaði og
borðuðu gómsætar kökur sem nemendur sjálfir höfðu bakað undir dyggri
leiðsögn Ollu. Þetta form á jólakvöldi hefur skipað fastan sess undanfarin
ár og er tilgangurinn að hafa það notalegt saman, nemendur og starfsfólk. Í
ár kom beiðni frá útskriftarárgangi 05 um að fá að koma og vera með,- þau
sögðust sakna grunnskólans síns svo mikið. Ekki var hægt að neita svo frómri
ósk og spiluðu því með okkur margir af nemendum þeim sem útskrifuðust í vor.
(01.12.05)
Þjóðahátíð í GF
myndir
Síðastliðinn
föstudag var haldin lítil þjóðahátíð í GF. Þar voru nemendur að sýna
afrakstur vinnu sinnar á þemadögum en þá var fjallað um fjölmenningu.
Nemendur skreyttu skólann með ýmsum verkefnum,- plakötum, myndum og
landakortum og einnig mátti heyra framandi tónlist, senjórítur voru á vappi
og sýndar voru myndir og myndbönd af nemendum við þemavinnuna. Allir
hóparnir buðu upp á kræsingar að hætti annarra þjóða. Fjöldi fólks kom í
heimsókn og kunnum við þeim hinar bestu þakkir fyrir.
(22.11.05)
Þemadagar
Miðvikudaginn 23. nóvember, fimmtudaginn 24. nóvember og föstudaginn 25.
nóvember verða þemadagar í Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar. Hefðbundin
stundatafla og bekkjarskipting fellur niður og nemendum verður skipt upp í
sex hópa en hver hópur vinnur með ákveðið land. Tveir kennarar vinna með
hverjum hóp.
Tveir kennarar verða með hvern
hóp. Löndin sem unnið er með eru: Bosnía, Spánn, Tæland, Pólland, Litháen og
Austurríki.
Nemendur Yngsta stigs og Miðstigs verða í skólanum frá 8-12 miðvikudag og
fimmtudag en frá 8-14 á föstudaginn.
Nemendur í 7.-10. bekk verða í skólanum frá 8-12 og 13-14:30 á miðvikudag og
fimmtudag og frá 8-14 á föstudeginum.
Athugið að á föstudaginn er sýning á afrakstri vinnunnar frá kl.
12-14 og verða nemendur að vera í skólanum á þeim tíma. Þá er opið hús og
allir áhugasamir velkomnir í heimsókn í skólann.
(22.11.05)
Ferð 9. og 10. bekkjar með skólaskipinu Dröfn
myndir
Fimmtudaginn 24.nóv. er nemendum í 9. og 10. bekk boðið í sjóferð með
skólaskipinu Dröfn. Lagt verður úr höfn á Reyðarfirði kl. 09:00 - og
því farið héðan frá Fáskrúðsfirði uppúr kl.08:00. Heimkoma er áætluð um
hádegi.
Á
heimasíðu
sjávarútvegsráðuneytisins má finna frekari upplýsingar um Dröfnina og
fræðsluferðir hennar og á vefnum
Fjaran og hafið má
finna ýmislegt sem varðar lífríki hafsins.
Afar nauðsynlegt er að klæða sig MJÖG vel, í hlý föt.
Ekki gleyma húfu og vettlingum. Margir unglingar eiga "Kraftgalla" sem hafa
reynst vel og gamla góða lopapeysan gerir alltaf kraftaverk gegn kulda svo
og flísfatnaður. Þeir sem eru sjóveikir verða að huga að
plástrum eða pillum. Einnig þarf að vera vel búinn til fótanna.
(14.11.05) Lego liðið Klettarnir vann til verðlauna
Liðið Klettarnir frá GF vann ein af sex verðlaunum sem veitt
voru í legokeppninni First LEGO league sem haldin var í Garðabæ laugardaginn
12. nóvember. Verðlaunin sem þau fengu voru veitt fyrir
tæknivinnu.

Til hamingju með góðan árangur!
(14.11.05) Danskennsla
Frá mánudeginum 14. nóvember til
þriðjudagsins 22. nóvember verður danskennsla í félagsheimilinu Skrúð.
Nemendur Miðstigs mæta í Skrúð alla dagana kl 8:00 og nemendur 7. bekkjar
kl. 13:00. Nemendur Yngsta stigs verða í danskennslu kl 8:50 og fara í Skrúð
með kennurum sínum. Nemendur þurfa að muna eftir að klæða sig vel þessa
daga. Athugið að danskennslan er samkvæmt námsskrá og því skylda.
(10.11.05) Þátttaka GF í
First LEGO league

Þann 12. nóvember verður fyrsta Lego keppnin á
Íslandi haldin. Meðal þátttakenda er liðið KLETTARNIR frá GF skipað
nemendum úr 8. og 9. bekk. Samtökin FFL á íslandi standa fyrir keppninni en
stefna samtakanna er að efla raunvísinda-áhuga barna.
Keppnin felst í að hanna, byggja og forrita LEGO vélmenni
sem síðan á að leysa þrautir á þrautabraut en einnig á að vinna stutt
rannsóknarverkefni og kynna það, á frumlegan og skýran hátt á keppnisdaginn.
Verkefnið er undirbúið hér í skólanum á þrautabraut. Á
sjálfan keppnisdaginn þarf liðið að sýna hvernig vélmennið leysir þrautina
og útskýra hvernig hönnun og forritun á að vinna.
Keppnin stendur allan laugardaginn og á sama tíma verður
einnig keppt á hinum Norðurlöndunum og stefnt er að því að hægt verði að
fylgjast með keppninni á
www.marel.is og ýmsar upplýsingar um keppnina er að finna á
www.hjernekraft.org.
KLETTARNIR vilja koma á framfæri sérstökum þökkum til
þeirra fyrirtækja sem hafa styrkt þá vegna ferðar í keppnina og til allra
sem hafa aðstoðað þá við undirbúning keppninnar.
(08.11.05) Foreldra heimsóknir
Á
næstu dögum fá foreldrar nemenda í GF boðsbréf, þar sem þeim verður boðið í
heimsókn í skólann. Okkur langar til að foreldrar komi í heimsókn í
kennslustundir og taki þátt í starfinu með okkur og barni sínu. Það er
alltaf börnum fyrir bestu að sem best samband sé á milli heimila og skóla og
viljum við með þessu efla enn frekar sambandið við foreldra. Að sjálfsögðu
eru foreldrar alltaf velkomnir í heimsókn þó þeir fái sérstakt boðsbréf að
þessu sinni. Foreldrar eru einnig beðnir um að svara sjálfsmatskönnun hjá
skólaritara áður en þeir halda heim eftir heimsóknina.
(08.11.05) 7. bekkur kynnir
Rauða krossinn
Nemendur 7. bekkjar luku í síðustu viku verkefni til
kynningar á Rauða krossinum, verkefnið var unnið í samfélagsfræði. Afrakstur
verkefnisins hangir uppi í anddyri skólans og þar geta gestir og gangandi
kynnt sér það. Þar er bæði hægt að lesa og hlusta á söguna af Henry
Dunant, skoða veggspjöld um grundvallar-markmið Rauða krossins, starfsemi
félagsins og síðast en ekki síst eru skýringar á táknum félagsins þ.e. rauða
hálfmánanum og rauða krossinum.
Myndir frá vinnunni.
(08.11.05) Safnaferð Miðstigs
Föstudaginn 28. október fóru nemendur Miðstigs, Þórhildur Helga og Jóhanna
Hauksdóttir í safnaferð á Eskifjörð.
Skoðuð var sýning Kristbjargar Ásgeirsdóttur og Ásmundar Sveinssonar.
Guðmann Þorvaldsson tók á móti hópnum og veitti frábæra leiðsögn um
sýningarnar. Nemendur unnu verkefni um sýninguna og virtust skemmta sér hið
besta.
Hegðun þeirra var til fyrirmyndar og þau voru skólanum til mesta sóma. Hér
má sjá nokkrar
myndir sem
teknar voru í ferðinni.
(28.10.05) Samvinna Kærabæjar og GF
Nú er að hefjast samstarf á milli grunnskólans og
leikskólans Kærabæjar. Krakkar úr Snillingahóp á leikskólanum koma í
heimsókn til okkar á Yngsta stig og taka þátt í skólastarfinu. Þeir munu
ganga inn í venjulegt skólastarf og taka þátt í þeim verkefnum sem við erum
að vinna hverju sinni.
Þrír nemendur af leikskólanum koma í einu og þrír nemendur frá okkur fara í
leikskólann á sama tíma og ganga inn í starfið þar. Í Snillingahópnum
sem hefja mun skólagöngu í GF næsta skólaár eru 11 nemendur og 12 nemendur
frá okkur fara í heimsókn á leikskólann.
Við á Yngstastigi hlökkum mikið til samstarfsins og vonum að
það verði ánægjulegt fyrir alla.
(21.10.05) Heimsókn frá alnæmissamtökunum
Percy Stefánsson frá íslensku alnæmissamtökunum, kom í
heimsókn til 9. og 10. bekkjar, þann 19. október. Hann fræddi
nemendur um HIV-smit og sjúkdóminn alnæmi en einnig um aðra kynsjúkdóma svo
sem klamediu. Benti hann á mikla aukningu klamediusmita hjá ungu fólki og
brýndi fyrir nemendum að nota ávallt þær varnir sem dugað hafa best við
kynsjúkdómum, þ.e. að nota smokk við kynmök. Percy sagði einnig
frá sinni sjúkdómasögu og erfiðleikum þeim sem hann hefur þurft að mæta
vegna HIV-smitsins.
Kunnum við Percy hinar bestu þakkir fyrir heimsóknina og fræðsluna.
(21.10.05) Heimsókn frá Heimili og skóla
Í vikunni kom Maríanna Jóhannsdóttir í heimsókn í skólann og
hitti þar skólastýrur og nokkra foreldra. Maríanna er í stjórn samtakanna
Heimili og skóli og ætlar að aðstoða okkur við að stofna formlegt
foreldrafélag við grunnskólann. Þeir foreldrar sem hafa áhuga á að taka
þátt í þeim undirbúningi eða að vera í stjórn félagsins er bent á að hafa
samband við Eygló aðstoðarskólastýru.
(30.09.05)
Foreldrafundir
Síðustu vikuna hafa foreldrafundir verið haldnir í skólanum.
Umsjónarkennarar hittu þá foreldra nemenda í sínum umsjónarbekkjum. Rætt var
um skólastarf vetrarins og ýmislegt sem viðkemur foreldrum í skólastarfinu.
Þokkaleg mæting var á fundina, allt frá 50-100 %. Fengnir voru foreldrar til
að vera svokallaðir tenglar við skólastarfið og verða þeir boðaðir á fund
fljótlega. Foreldrar eru að sjálfsögðu alltaf velkomnir í heimsókn í skólann
og hvetjum við þá til að vera duglega að koma og eiga samvistir með börnum
sínum á þeirra vinnustað.
(30.09.05)
Bekkjarkvöld 7. bekkjar
7. bekkur hélt bekkjarkvöld miðvikudaginn 21. september og þema kvöldsins
var umsnúningur þ.e. strákarnir mættu uppbúnir sem stelpur og stelpurnar
uppbúnar sem strákar. Allir skemmtu sér konunglega í leikjum og fl.
Myndir
(23.09.05) Nýtt nemendaráð og
Hattadagur!

Nú hefur verið skipað í nýtt nemendaráð fyrir
skólaárið 2005-2006.
Það skipa þau Björgvin Stefán, Tanja Rún,
Ellen Rós, Þráinn, Heimir Jón og Eydís Lilja. Þau ætla að vera dugleg að
standa fyrir alls konar uppákomum í vetur.
Ákveðið var að ríða á vaðið með Hattadegi,
20. sept.. Nemendur og starfsfólk mættu í skólann með alls kyns hatta og var
mjög skrautlegt að líta yfir hópinn.
(13.09.05) Olweusarverkefnið gegn einelti
Starfsfólk Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar er nú
aftur komið á fullt í vinnu sinni í Olweusarverkefninu
Gegn einelti, sem hófst síðastliðið
haust. Um 70 grunnskóla á landinu taka þátt í verkefninu.
Grundvöllur eineltisáætlunarinnar okkar er:
a) Hlýja, einlægur áhugi á velferð
barnanna og alúð
hinna fullorðnu.
b) Ákveðnir rammar eru gegn
óviðunandi hegðun.
c) Neikvæð viðurlög liggja við
brotum á reglum - en
þau eru hvorki niðurlægjandi né líkamleg
d) Hinir fullorðnu í skóla og á
heimili koma fram af
myndugleik sem yfirboðarar.
Þessar meginreglur eru yfirfærðar á ýmsar
aðgerðir í skólanum, sem allir starfsmenn læra. Við leggjum mikið upp úr því
að endurskipuleggja ,,umhverfið” (félagskerfið) til að komið sé í veg fyrir
að einelti þrífist og til að vinna gegn andfélagslegri hegðun.
Á komandi foreldrafundnum verða afhentir
bæklingar sem eru upplagðir til að auka þekkingu foreldra á einelti og
hjálpa þeim að öðlast betri skilning á líðan og gerðum barna sinna.
(26.08.05) Skólastarf
GF hafið
Skólaárið 2005-2006
hófst 24. ágúst. Starfsfólk skólans kom þó töluvert fyrr til starfa og
undirbjó skólaárið. Nýtt starfsfólk er Margrét Sigurðardóttir, skólaritari
og Elsa Sigrún og Guðrún Íris kennarar og eru þær boðnar velkomnar til
starfa.
Nemendur skólans eru nú
87 og hefur því heldur fækkað en þó ekki eins og búist var við í vor. Í vor
útskrifaðist stór árgangur en mjög lítill árgangur kemur inn í fyrsta bekk.
Til stóð að það væri einungis eitt barn en hefur nú teygst upp í fjögur.
Einnig hafa þónokkrir nemendur verið skráðir inn í skólann frá öðrum
skólum. Bjóðum við alla þessa nýju nemendur okkar sérstaklega velkomna og
vonum að þeim líki vel hjá okkur.
Einkunnarorð okkar
eru ánægja, ábyrgð, árangur og áhugi og vonum við að allir sem að
skólastarfinu koma í vetur tileinki sér þessi orð í starfi og leik.
Nýtt og breytt
leiksvæði
Miklar breytingar hafa
orðið á útileiksvæði nemenda. Til viðbótar við gervigrasvöllinn eru komnar
nýjar rólur, snúningstæki og klifurtæki og kastalinn hefur verið færður inn
á aðalleiksvæðið. Vonum við að þessi viðbót leiktækja og endurnýjun verði
nemendum til gagns og gleði.
Krafttímar
Skipulag skólastarfs
verður með venjubundnum hætti nema að kennarar á unglingastigi eru að þróa
svokallaða krafttíma í stærðfræði, íslensku og náttúrufræði. Samtals eru
það 8 kennslustundir á viku sem 7. -10 bekkur er saman í stofu og þá með 3-4
kennara til aðstoðar. Þessir tímar eru hugsaðir líkt og stoðtímarnir í
Menntaskólanum á Egilsstöðum eða áformstímarnir á Miðstigi, þ.e. nemendur
eiga að vera að vinna í sínu efni, hver á sínum hraða og kennararnir eru til
aðstoðar. Þar sem þetta eru vinnutímar þá ætti aldursdreifing nemenda ekki
að skipta máli frekar en á flæðilínunni í frystihúsinu, því hver vinnur að
sínu. Auðvitað koma upp vandamál í þessu kennslufyrirkomulagi eins og í
öðrum en þá höfum við aukastofur sem nemendur geta farið í og unnið. Þeir
nemendur sem leggja sig fram í þessu ættu að geta fleytt sér vel áfram og
með dugnaði t.d. minnkað heimanám sitt. Eins og fyrr segir er krafttímarnir
í þróun og kennslufyrirkomulagið getur því tekið breytingum.
Ávextir- grænmeti-
mjólk
Sem fyrr geta nemendur
gerst áskrifendur af mjólk eða/og ávöxtum og grænmeti í nestistímum. Hafa
þarf samband við ritara skólans milli kl 8-12 til að skrá nemendur í þessa
hollustu. Nemendur sem skulda frá fyrra ári þurfa að gera upp skuld sína
áður en hægt er að gerast áskrifendi að nýju. Einnig getur þurft að koma
til þess að hætta að bjóða áskrift fyrir ákveðna hópa ef umgengni um nestið
í nestistímum er slæm.
Valfög
Valgreinar hjá 9. og 10. bekk eru tónlist, handavinna,
hringekja, stærðfræði og íþróttafræði. Hver nemandi þarf að velja þrjú fög
og hefst kennsla í þeim vikuna 29. ágúst- 2. september.
(15.08.05)
Tilkynning til nemenda og foreldra
Nemendur mæti í skólann miðvikudaginn 24.
ágúst kl. 10:00.
Afhentar verða stundaskrár, bækur og
innkaupalistar vegna námsgagna. Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá
fimmtudaginn 25. ágúst. Foreldrar nemenda sem nýfluttir eru í bæinn
eru hvattir til að skrá börnin í skólann hið fyrsta. Skólastýrur og ritari
verða við í skólanum frá mánudegi 15. ágúst.
(15.08.05) Hjól og hjálmar
Nemendur og foreldrar. Vinsamlegast
athugið að einungis má koma á skólalóðina á hjólum hverskonar með lögmætan
öryggisbúnað. Semsagt....upp með hjálmana.
vor 2005
(03.06.05) Skólaslit
Þriðjudaginn 31. maí voru skólaslit. Þau
voru haldin í félagsheimilinu Skrúð og var góð mæting nemenda og foreldra.
Nemendur í forskóla fluttu tónlistaratriði og skólahljómsveitin spilaði.
Allir nemendur fengu einkunnarblöð sín og þó nokkrir fengu viðurkenningar
fyrir góða ástundun og mætingu. Að þessu sinni voru 17 nemendur sem
útskrifuðust úr 10. bekk. Fengu þeir skírteinin sín og rós frá skólanum.
Vonum við starfsfólk grunnskólans að þeim vegni vel í vegferð sinni um
lífið. Eftir skólaslitin var hátíðarkvöldverður og dansleikur sem nemendur
10. bekkjar skipulögðu og þar mættu nemenudur úr 8.-10. bekk skólanna
í Austurbyggð. Heppnaðist sú samkunda hið besta.
(28.05.05) Vordagar
Þessa dagana standa yfir svokallaði
Vordagar. Þá leggja nemendur og kennarar frá sér hefðbundið námsefni og
einnig er hið venjubundna bekkjarkerfi stokkað upp. Nemendum er skipt í 6
hópa og í hverjum hóp eru nemendur frá öllum árgöngum skólans,- þ.e. saman í
hóp eru nemendur frá 6 til 16 ára. Unnið er með náttúruþemun: Urð og grjót,
Fjaran, Veður, Skordýr, Gróður og Vatn. Hver nemendahópur vinnur með tvö af
þessum þemum. Fjölbreytni einkennir vinnuna með hvert þema og er m.a. farið
út í Árhöfn í fjöruferð, gengið á Kjappeyrarmúla, byggðir sandkastalar inn á
Leiru, settar upp skordýragildrur, búnar til gróðurmyndir, flugdrekar
smíðaðir og farið í vatnsblöðruslag. Á vordögum er einnig leikja og
hjóladagur en þá fara nemendur og starfsfólk í leiki, t.d. boðhlaup og
fílafótbolta. Slysavarnardeildin Hafdís setur upp hjólreiðaþraut og
lögreglan kemur og skoðar hjól.
|